TM - Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2017

Uppgjör fjórða ársfjórðungs verður birt þann 16. febrúar - kynningarfundur sama dag kl. 16.00.


TM mun birta uppgjör fjórða ársfjórðungs 2017 eftir lokun markaða föstudaginn 16. febrúar nk. og býður til kynningar á afkomu félagsins sama dag klukkan 16.00. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:

https://global.gotomeeting.com/join/235778077