Uppkaup ríkisbréfa RIKH 18 1009


Ákveðið hefur verið að halda uppkaup föstudaginn 23. mars 2018 kl. 13:30 til 14:00 með tilboðsfyrirkomulagi. Ríkissjóður býðst til að kaupa til baka óverðtryggð bréf í flokknum RIKH 18 1009 sem er með lokagjalddaga 9. október 2018. Tilgangur uppkaupanna er að minnka stærð flokksins sem nú er um 40 ma.kr. og draga þar með úr endurfjármögnunaráhættu ríkissjóðs á lokagjalddaga flokksins. 

Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknum uppkaupum.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta þeirra eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í uppkaupunum en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Uppkaupunum verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast á innsendum verðum (e. multiple price auction method). Að öðru leyti er vísað í uppkaupsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 28. mars 2018.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.



Attachments

Frettatilkynning_21.mar.2018 Uppkaupsskilmalar_RIKH_23.mar.2018