Kvika banki hf.: Niðurstöður aðalfundar Kviku banka hf.


Aðalfundur Kviku banka hf. var haldinn miðvikudaginn 21. mars 2018 á Nauthól, Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík.

Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

  1. Ársreikningur vegna ársins 2017 var samþykktur eins og hann var lagður fram. Þá var samþykkt að leggja hagnað ársins 2017 við eigið fé félagsins og að ekki yrði greiddur út arður til hluthafa á árinu 2018.
     
  2. Samþykkt var að breyta A. lið bráðabirgðaákvæðis I í samþykktum félagsins á þann veg að hluthafar falla frá forgangsrétti sínum til áskriftar að nýjum hlutum samkvæmt þeirri heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár sem ákvæðið kveður á um.
     
  3. Stjórnarkjör fór fram. Í aðalstjórn félagsins voru kjörin:

               - Guðjón Reynisson

               - Guðmundur Örn Þórðarson

               - Inga Björg Hjaltadóttir

               - Hrönn Sveinsdóttir

               - Kristín Pétursdóttir

            Til setu í varastjórn félagsins voru kjörin:

               - Kristín Guðmundsdóttir

               - Pétur Guðmundarson

  1. Ekki var lögð til breyting á endurskoðendum félagsins, en á aðalfundi þess árið 2016 var Deloitte ehf. kosið sem endurskoðunarfyrirtæki félagsins til fimm ára í samræmi við 2. mgr. 90. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
     
  2. Á fundinum lá frammi tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins í samræmi við 79. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög og var hún samþykkt.
     
  3. Tillaga stjórnar um að þóknun stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefnd stjórnar taki breytingum í samræmi við breytingar á launavísitölu síðastliðið ár var samþykkt. Þóknun stjórnarformanns verður eftir breytingu kr. 827.748 á mánuði og annarra stjórnarmanna kr. 413.874 á mánuði. Varamenn í stjórn fá greiddar kr. 41.386 fyrir hvern setinn fund. Formaður í undirnefnd stjórnar fær kr. 413.874 á mánuði en aðrir nefndarmenn kr. 206.938 á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf. í síma 540 3200.