Útboð ríkisvíxla RIKV 18 1005


Fimmtudaginn 24. maí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 1005 sem er með gjalddaga 5. október 2018.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 28. maí 2018.

Sótt verður um að RIKV 18 1005 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi mánudaginn 28.
maí 2018.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.

Viðhengi


Attachments

Frett RIKV 22.mai.2018 Útboðsskilmálar RIKV 24. mai.2018