REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 20. viku 2018 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.300.000 eigin hluti fyrir 116.165.000 kr. eins og hér segir: 

DagsetningTímiKeyptir
hlutir
Viðskipta-
verð
Kaup-
verð
Eigin hlutir
eftir viðskipti
14.5.201809:54200.00089,817.960.0006.429.932
15.5.201811:01200.00090,518.100.0006.629.932
15.5.201815:18150.00089,713.455.0006.779.932
16.5.201809:41200.0008917.800.0006.979.932
17.5.201809:30150.00088,813.320.0007.129.932
17.5.201809:45200.00088,617.720.0007.329.932
18.5.201813:27200.00089,0517.810.0007.529.932
Samtals 1.300.000 116.165.000 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 26. mars 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 22. mars 2018.                            
                            
Reitir hafa nú keypt samtals 7.529.932 hluti í félaginu sem samsvarar 45,64% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 678.054.787 krónum sem samsvarar 45,20% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 7.529.932 hluti, eða 1,07% af heildarhlutafé félagsins.                            
                            
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða 31. janúar 2019. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.