Kvika banki hf.: Hækkun skuldabréfaútgáfu


Reykjavík, 20. júní 2018

Kvika banki hf. hefur gefið út hækkun skuldabréfaútgáfu að fjárhæð 1.130 milljónir króna í skuldabréfaflokknum KVB 17 02, en heildarheimild flokksins er 4.000 m.kr. Nafnverð skuldabréfaútgáfunnar eftir hækkun er 2.160 milljónir króna. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku hækkunarinnar til viðskipta í dag, 20. júní 2018, og sótt hefur verið um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.

Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku, https://www.kvika.is/media/pdf/lysing-kvika-banki-haekkun-skuldabrefautgafu-17-02.pdf