Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar


Tekjur, EBITDA og hagnaður hækka milli tímabila

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Rekstrartekjur námu 269,5 milljónum USD (28,6 ma.kr.) og hækka um 37,2 milljónir USD (16,0%) frá sama tímabili árið áður .1
  • EBITDA nam 197,8 milljónum USD (21,0 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 73,4% af tekjum, en var 72,2% á sama tímabili í fyrra.
  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 86,7 milljónum USD (9,2 ma.kr.), en var 75,1 milljón USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um 15,4% milli tímabila.
  • Hagnaður tímabilsins var 54,5 milljónir USD (5,8 ma.kr.) en var 39,7 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  • Nettó skuldir lækkuðu um 50,0 milljónir USD (5,3 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 1.992,6 milljónir USD (211,2 ma.kr.).  
  • Handbært fé frá rekstri nam 149,2 milljónum USD (15,8 ma.kr.) sem er 4,8% hækkun frá sama tímabili árið áður.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Rekstur Landsvirkjunar heldur áfram að þróast með jákvæðum hætti en fyrri hluti ársins 2018 er tekjuhæsti árshelmingurinn í sögu fyrirtækisins, meðal annars vegna aukinnar orkusölu og hækkandi álverðs. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði á rekstur sem við lítum helst til, er rúmir 9 milljarðar króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 15% frá sama tímabili árið áður. Þá lækkuðu nettó skuldir fyrirtækisins um 5 milljarða króna, eftir að tímabundið hafði hægt á lækkun skulda vegna umfangsmikilla framkvæmda.

Í lok júní var hornsteinslagning og gangsetning Búrfellsstöðvar II, átjándu aflstöðvar Landsvirkjunar, og verður hún tekin í fullan rekstur í ágúst 2018. Áður hafði Þeistareykjastöð hafið fullan rekstur í apríl.“ 

Viðhengi


Attachments

Árshlutareikningur jan-júní 2018 Fréttatilkynning