Islandsbanki hf.: Íslandsbanki gefur út skuldabréf fyrir 250 milljónir sænskra króna og 200 milljónir sænskra króna


Íslandsbanki hefur í dag gefið út tvö skuldabréf undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma sínum með neðangreindum skilmálum:

Útgefandi: Íslandsbanki hf.
Nafnverð: SEK 250.000.000
Gjalddagi: 27. febrúar 2020
Skráning: Kauphöllin á Írlandi
ISIN: XS1870388557
Umsjónaraðili: Danske Bank

Útgefandi: Íslandsbanki hf.
Nafnverð: SEK 200.000.000
Gjalddagi: 27. ágúst 2021
Skráning: Kauphöllin á Írlandi
ISIN: XS187043735
Umsjónaraðili: Danske Bank

Grunnlýsingu USD 2.500.000.000 GMTN útgáfurammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarmognun/gmtn/

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.036 ma. kr. (8,3 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs, og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2017 af tímaritinu The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.