Kvika banki hf: Afkomutilkynning vegna níu mánaða uppgjörs 2018


Rekstrarniðurstaða Kviku á fyrstu níu mánuðum ársins 2018 var í samræmi við áætlun. Hagnaður Kviku fyrir skatta á tímabilinu 1. janúar - 30. september 2018 samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri samstæðu bankans nam 1.444 milljónum króna fyrir skatta. Á sama tímabili árið 2017 var hagnaður bankans fyrir skatta 1.011 milljónir króna. Arðsemi eiginfjár miðað við afkomu fyrir skatt á fyrstu níu mánuðum ársins 2018 var 17,3% á ársgrundvelli.  

Eigið fé bankans nam 12,6 milljörðum króna í lok september og heildareignir námu 97,3 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall bankans (CAD), að teknu tilliti til afkomu ársfjórðungsins, var 23,5% sem er umtalsvert umfram kröfu FME, en hún nemur 20,25% með eiginfjáraukum. Sjóður, innstæður í Seðlabanka og verðbréf með ríkisábyrgð námu rúmlega 35,5  milljörðum króna. Lausafjárhlutfall var 201% í lok september, sem er verulega umfram lögbundið 100% lágmark, sem og innri markmið bankans.

Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki verður gjaldfærður í árslok þar sem skattstofninn miðast við fjárhæð skulda í árslok. Miðað við stöðu skulda 30. september 2018 og núverandi álagningarhlutfall þá væri álagður sérstakur bankaskattur 115 milljónir króna vegna ársins 2018. Bankinn á yfirfæranlegt skattalegt tap eins og fram kemur í árshlutareikningi bankans fyrir fyrri helming ársins 2018 sem kemur til lækkunar á útreiknuðum tekjuskatti. Framkvæmt verður mat á yfirfæranlegu skattalegu tapi á fjórða árshelmingi en niðurstaða þess hefur áhrif á afkomu bankans eftir skatt.

Vaxtatekjur bankans á fyrstu níu mánuðum ársins eru nokkuð yfir áætlun og þóknanatekjur eru á áætlun. Hins vegar eru fjárfestingatekjur og hlutdeildartekjur undir áætlun.

Áætlun ársins 2018 á afkomu fyrir skatta var hækkuð í 1.931 milljónir króna eftir fyrsta ársfjórðung og ekki þykir ástæða til að gera breytingar á henni nú.

Stefna bankans hefur verið endurskoðuð af starfsfólki og stjórn bankans og er hún birt í meðfylgjandi kynningu þar sem einnig er farið nánar yfir afkomu bankans fyrstu níu mánuði ársins.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri:

„Rekstur Kviku á fyrstu níu mánuðum ársins var í samræmi við áætlanir og hagnaður eykst umtalsvert milli ára. Arðsemi bankans er góð og fjárhagsstaða hans mjög sterk, hvort sem litið er til eiginfjár- eða lausafjárhlutfalla. Ástand á mörkuðum hefur verið fremur dauft á árinu og einkennst af lítilli veltu og verðlækkunum, en þrátt fyrir það hefur reksturinn gengið prýðilega og öll tekjusvið bankans eru að skila hagnaði.

Í júní var greint frá því að undirrituð hefði verið viljayfirlýsing um kaup Kviku á öllu hlutafé í Gamma Capital Management. Áreiðanleikakönnun er að ljúka og frekari frétta er að vænta á næstunni. Þá hefur vinna hafist við skráningu hlutabréfa bankans á aðallista Nasdaq OMX Iceland og stefnt er að skráningu  á fyrri árshelmingi 2019.“

Nánari upplýsingar veitir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku í síma 540 3200.


Viðhengi


Attachments

181025 Kvika bank - Results 9M 2018_final