Almenna leigufélagið ehf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 15. nóvember 2018


Almenna leigufélagið ehf. lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokkunum AL260148 og AL231124 sem gefnir eru út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfaflokkurinn AL260148 er verðtryggður, til 30 ára, með jöfnum greiðslum á föstum 3,50% ársvöxtum. Skuldabréfaflokkurinn AL231124 er verðtryggður, til 6 ára en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkarnir eru veðtryggðir samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.

Útboðið var með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin var í hverju flokki. Heildartilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 3.100 milljónir króna að nafnverði.

Alls bárust 7 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL260148 að nafnvirði 1.240 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,69% - 3,70%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,70%. Heildarstærð flokksins verður 7.900 milljónir króna, að nafnvirði, eftir viðbótarútgáfuna.

Alls bárust 14 tilboð í skuldabréfaflokkinn AL231124 að nafnvirði 1.860 milljónir króna á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,10% - 3,60%. Tilboðum að fjárhæð 1.080 milljónum króna var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Heildarstærð flokksins verður 1.080 milljónum króna eftir útgáfuna.

Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á núverandi skuldum félagsins.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn 23. nóvember 2018 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf., þann sama dag.

Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is