Ársreikningur RARIK fyrir árið 2023


Hagnaður RARIK 1,5 milljarður króna.

Samkvæmt rekstrarreikningi nam hagnaður ársins 1.521 milljón króna sem er talsvert lægra en árið á undan en þá var hagnaður 2.459 milljónir króna. Breytingin stafar af því að í lok árs 2022 seldi RARIK hlut sinn í Landsneti hf. og því eru ekki reiknuð áhrif frá hlutdeildarfélagi í ársreikningi 2023. Heildarhagnaður að teknu tilliti til áhrifa af endurmati fastafjármuna nam 2.561 milljón króna sem er svipuð niðurstaða og árið 2022.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 6.699 milljónum króna eða 32,3% af veltu ársins, samanborið við 31,1% á árinu 2022. Handbært fé frá rekstri nam 4.397 milljónum króna.

Rekstrartekjur hækkuðu um 15% frá árinu 2022 og námu 20.736 milljónum króna en rekstrargjöld hækkuðu  um tæp 13% á milli ára og námu 17.259 milljónum króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2023 nam 3.477 milljónum króna sem er tæplega 28% hækkun frá fyrra ári. Hrein fjármagnsgjöld námu 1.576 milljónum króna, en námu á árinu 2022  2.582 milljónum króna. Lækkunin skýrist aðallega af auknum fjármunatekjum  á árinu 2023 vegna skuldabréfs sem RARIK fékk vegna sölunnar á eignarhlut sínum í Landsneti.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok  93.829 milljónir króna og hækkuðu um 4.915 milljónir króna á milli ára. Heildarskuldir námu 35.792 milljónum króna og hækkuðu um 2.663 milljónir króna frá fyrra ári. Eigið fé var 58.037 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 61,9% samanborið við 62,7% í árslok 2022. Fjárfestingar ársins að frádregnu söluandvirði seldra rekstrarfjármuna námu 7.654 milljónum króna, sem er 960 milljónum króna meira en árið á undan.

Tekjur samstæðunnar hækkuðu að meðaltali um 15% á milli ára. Hækkun tekna  af dreifingu, raforkusölu, sölu á heitu vatni og tengigjöldum var á bilinu 11-17% . Aðrar tekjur lækkuðu um 21% milli áranna.  

Stöðugt er unnið að endurnýjun dreifikerfisins með lagningu jarðstrengja í samræmi við langtímaáætlun fyrirtækisins og í árslok 2023 var hlutfall jarðstrengja í dreifikerfi RARIK um 77%.

Stjórn RARIK leggur til við aðalfund að greiddar verði 310 milljónir króna í arð til eiganda fyrirtækisins, sem er Ríkissjóður Íslands.

Samstæðuársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Horfur ársins 2024 eru ágætar, gert er ráð fyrir tekjuaukningu hjá samstæðunni fyrst og fremst vegna magnaukningar í raforkudreifingu, en einnig vegna hækkunar verðskrár. Gert er ráð fyrir að EBITDA verði í kringum 31% af veltu og að fjárfestingar ársins verði um 7,9 milljarðar króna.

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna

Helstu stærðir úr rekstri20232022202120202019
      
Rekstartekjur 20.73618.02716.74816.26816.777
Rekstrargjöld 17.25915.30513.83013.47013.276
Rekstrarhagnaður3.4772.7222.9182.7983.501
Hrein fjármagnsgjöld-1.576 -2.582 -1.553 -1.612 -1.059
Áhrif hlutdeildarfélags02.3391.018832770
Hagnaður fyrir skatta1.9022.4802.3832.0183.212
Tekjuskattur-381 -21 -273 -237 -486
Hagnaður1.5212.4592.1101.7812.726
      
Eignir samtals 93.82988.91483.46978.85468.306
Eigið fé58.03755.78553.65249.72243.926
Skuldir35.79233.12929.81729.13224.380
      
Handbært fé frá rekstri4.3974.4714.5704.3034.307
Greidd vaxtagjöld1.146785740689734
      
Fjárfesting ársins7.7446.7985.3177.5055.543
Fjárfesting sem hlutfall af tekjum ársins37%38%32%46%33%
      
EBITDA6.6995.6015.6495.2715.740
Vaxtaþekja5,857,147,637,657,82
Eiginfjárhlutfall61,9%62,7%64,3%63,1%64,3%
      
EBITDA/Velta32,3%31,1%33,7%32,4%34,2%
      

Ársreikningur RARIK 2023 var samþykktur á fundi stjórnar þann 5. mars, 2024 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri RARIK, í síma 528 9000.

Viðhengi



Attachments

Samstæðuársreikningur RARIK ohf. 2023