Reginn hf.: Hluthafafundur Regins hf. verður haldinn 29. maí 2024


Stjórn Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn á skrifstofu Regins að Hagasmára 1, 201 Kópavogi, miðvikudaginn 29. maí 2024 klukkan 15:30.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Tillaga um breytingu á nafni félagsins.
    1. Stjórn Regins hf. leggur til breytingu á 1. gr. samþykkta félagsins þess efnis að félagið taki upp nýtt nafn sem verði Heimar hf.
  2. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins.
    1. Stjórn Regins hf. leggur til að núgildandi heimild í 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins til handa stjórn til þess að hækka hlutafé til þess að efna uppgjör á valfrjálsu yfirtökutilboði í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf., sem samþykkt var á hluthafafundi 12. október sl., falli brott.
  3. Önnur mál, löglega fram borin.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu hluthafafundar á netfangið fjarfestatengsl@reginn.is og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísa umboði við mætingu á hluthafafund en þá skal þess gætt að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboðið með tilliti til gildis þess. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en ein vika er til fundarins. Mikilvægt er að tillögur berist með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins, en eigi síðar en 10 dögum fyrir hluthafafund, eða fyrir kl. 15:30 þann 19. maí 2024. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins.

Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins og á vefsvæði tengdu hluthafafundi á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur, en endanleg dagskrá og tillögur verða aðgengilegar að minnsta kosti einni viku fyrir hluthafafund, sbr. 18. gr. samþykkta félagsins. Hluthafafundur félagsins verður án pappírsgagna.

Meðfylgjandi er fundarboð, tillögur og greinargerð stjórnar með nánari upplýsingum.

Stjórn Regins hf.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Samþykktir m. breytingum Reginn hf. - Hluthafafundur-Fundarboð Reginn hf. - Dagskrá og tillögur