Landsbankinn hf.: Græn skuldabréfaútgáfa í evrum


Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra. Um er að ræða fjórðu grænu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum. Skuldabréfin bera 5,0% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 225 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Skuldabréfin eru gefin út til rúmlega fjögurra ára með lokagjalddaga í maí 2028.

Heildareftirspurn nam yfir 2.000 milljónum evra frá meira en 150 fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 13. mars 2024.

Umsjónaraðilar voru ABN AMRO Bank, Barclays Bank, BofA Securities og Goldman Sachs Bank Europe.